Særós mist

20.01.2007 13:20:03 / saeros

Hamingja!!

ég ætla aðeins að fá að monta mig:

ÉG FÉKK 13 FYRIR VERKEFNI OG FYRIRLESTUR SEM ÉG GERÐI UM ALÞJÓÐAVÆÐINGU!!!

eins og flestir vita þá er einkanaskalinn í danmörku frá 0-13. 12 er samt ekki með og 13 er bara gefið ef kennarinn er ótrúlega ótrúlega ánægður og sér ekkert að verkefninu. 11 jafngildir 10.

Ég var sú eina sem fékk 13! ég er svoo ánægð :) :) :) :) 

það var ótrúlega gaman að vinna að þessu verkefni, og mér finnst ég hafa lært alveg ótrúlega mikið af því.

váá...mér finnst lífið í danmörku alltaf betra og betra eftir að ég "slappaði aðeins af". ég er alveg á grilljón að sauma og hanna föt. ég er búin að hanna ótrúlega mikið af kjólum og fötum sem mig langar til að sauma. núna er ég að fara í bæjinn að kaupa mér saumavél á útsölu!! :D

víí....eg er hamingjusöm! - vildi bara láta ykkur vita :)

múmmsalína skrifaði
yndislega dúttlan mín. það er fátt í þessum heimi sem þú ræður ekki við. öll verkefni sem þú ræðst í virðast leika í höndunum á þér. þetta er ótrúlegt. fallega 13-tals stelpan mín. ef ég ætti að gefa þér einkun fyrir frammistöðu sem dóttir þá fengirðu 13 hjá mér. líka fyrir frammistöðu þína sem manneskja í samfélagi mannanna. ástin mín. mamma þín
særós skrifaði
yndislega mamma mín! þú færð líka STÓRT "13-tal" í einkun frá mér... eða kannski bara 14 meira að segja ! Ást, þú ert yndisleg :D
Nanna;* skrifaði
Særós! Þú ert svo dugleg! Ég er ótrúlega stolt af þér. Það eru ekki allir sem myndu vera svona jákvæðir og gefast ekki upp þegar þeir þurfa að flytja til annarra landa. Ég þekki það af eigin reynslu að þetta er erfitt!! Elska þig sæta og vona að hlutirnir verða áfram svona góðir!! :* KNÚS!!!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.